Verkefni um fyrri heimsstyrjöldina

f

 

Nemendur í 8.bekk unnu nýlega áhugavert verkefni um fyrri heimsstyrjöldina þar sem þau fengu að setja sig í spor hermanna í skotgröfunum. Verkefnið fólst í að skrifa bréf eins og þau væru send heim frá víglínunni og lýsa upplifun, aðstæðum og tilfinningum frá þeim tíma. Til að gera verkefnið enn raunverulegra létu nemendur bréfin líta út fyrir að vera gömul með skapandi útfærslum. Verkefnið sameinaði sögu, ritun og sköpunargleði og gaf nemendum tækifæri til að nálgast söguna á lifandi og persónulegan hátt.