Þórsmerkurferð
Dagana 3.-5. júní fóru nemendur í 10. bekk Austurbæjarskóla í útskriftarferð. Leiðin lá austur í Þórsmörk en áralöng hefð hefur skapast fyrir því að nemendur fari þangað með kennurum og njóti lífsins í náttúrunni á lokaspretti grunnskólans.
Ferðin gekk afskaplega vel, veðrið lék við ferðalangana og því gafst mikill tími til útiveru og leikja sem unglingarnir nýttu sér óspart frá komu til brottfarar.
Dagarnir einkenndust af leikjum, spilum, gleði, samveru og söng innandyra sem utan. Gengið var inn Nauthúsagil þar sem stikla þurfti á steinum, vaða litla á og klifra ögn í lokin til að sjá tilkomumikinn foss innst í gilinu. Einnig gengu nemendur frá Básum, upp Valahnúk (458 m.), niður í Húsadal, yfir í Langadal og þaðan aftur í Bása.
Staðahaldarar í Básum hrósuðu unglingunum óspart og sögðu að þetta væri einstaklega flottur og góður hópur. Þau ákváðu því að tendra tvær brennur sérstaklega fyrir nemendur Austó. Einn lítinn sykurpúðaeld og annan stærri varðeld. Þá var dreginn fram gítar og sungnir nokkrir útilegusöngvar.
Á heimleiðinni var stoppað við Seljalandsfoss þar sem gengið var bakvið fossinn fallega og síðan brunað heim í helgarfrí.