Svakalega lestrarkeppnin kynnt í bíósalnum

f

 

Svakalega lestrarkeppnin stendur yfir frá 15. september til 6. október. Hún er hugsuð sem hvatning og til þess gerð að auka ánægju af því að lesa bækur. Um 105 skólar á landinu taka þátt í ár. Þær Eva Rún og Blær frá Svakalegu sögusmiðjunni mættu í bíósalinn og ræddu við 3. og 4. bekk um lestur, bækur og keppnina. Auk þess tóku nemendur þátt í að semja sögu með þeim! Góð stund og voru nemendur áhugasamir.
Í keppninni skráum við mínútur:
  • Allan yndislestur, fræðibækur, heima og í skólanum og þar á meðal virka hlustun á hljóðbókum
  • Lestur á öðru tungumáli
  • Upplestur foreldra fyrir yngstu börnin
  • Lestur kennara í nestistíma
Nánari upplýsingar má finna á https://www.sogusmidjan.is/lestrarkeppnin
Austurbæjarskóli er framsækinn skóli fyrir alla og viljum við sjá nemendur okkar lesa hér og þar og alls staðar næstu vikurnar!