Stærðfræðikeppni MR
Tveir verðlaunahafar í Stærðfræðikeppni MR koma úr Austurbæjarskóla. Það eru þau Anna María úr 9. bekk sem hlaut 5. sæti og Kolbeinn Kjói í 8. bekk sem lenti í 8. sæti. Hér eru þau með Sigrúnu Lilju stærðfræðikennara sínum sem haldið hefur utan um keppnina fyrir hönd Austurbæjarskóla um árabil. Við óskum þeim öllum til hamingju með góðan árangur.
Til gamans má jafnframt geta þess að Austurbæjarskóli hreppti 10. sætið í Fjármálaleikunum 2026, en 50 skólar tóku þátt.