Skólaþing
Í apríl fóru nemendur 10. bekkjar í heimsókn í Skólaþing, þar sem þeir fóru í hlutverk þingmanna. Markmið heimsóknarinnar var að fræða nemendur um störf Alþingis og efla lýðræðisvitund, en í framhaldi verður unnið með stjórnmál í íslensku og samfélagsfræði. Munu nemendur stofna sína eigin flokka og skrifa sínar stefnuskrár. Þeirri vinnu lýkur svo með framsöguræðu í bíósal 15. maí.