Skapandi nemendur

f
f

Nemendur í 9. bekk hafa verið að læra um heimsálfuna Afríku og kynntu sér svo sérstaklega stök lönd innan álfunnar til að kynna fyrir samnemendum. Við fengum svo sannarlega að njóta fjölbreytninnar í skólasamfélaginu okkar þegar tveir nemendur, sem hafa búið í Ghana og Sierra Leone, deildu með okkur reynslu sinni og þekkingu af þeim löndum. Aðrir nemendur sýndu hinar ýmsu skapandi hliðar og kynntu efnið á fjölbreyttan hátt. Þar má t.d. nefna málverk í anda Marokkó, fiðluleik í egypskum tónskala og frumsamið lag og texta með staðreyndum um Nígeríu. Sköpunargleðin á sér engin takmörk í Austurbæjarskóla.