Sigurvegari frá Austurbæjarskóla
Sigríður Helga Sverrisdóttir, enskukennari, ásamt Járngerði.
Smásagnakeppni FEKÍ (Félag enskukennara á Íslandi) er haldin árlega fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum. Þema keppninnar er vanalega tilkynnt á Evrópska tungumáladeginum sem er í september. Nemendur í 7. - 10. bekk í Austurbæjarskóla taka þátt á hverju ári og verða smásögurnar að vera skrifaðar á ensku og tengjast ákveðnu þema sem að þessu sinni var orðið EPIPHANY sem þýðir UPPLJÓMUN á íslensku.
Sigurvegari keppninnar í ár kemur úr Austurbæjarskóla, Járngerður Þórgnýsdóttir, 9. RA en hún vann í sínum flokki, 8.-10. bekk. Enskukennari hennar er Sigríður Helga Sverrisdóttir.
Hér eru fleirir myndir frá viðburðinum: https://drive.google.com/drive/folders/121C14TVk1A9UOmrazIbXTbL_sxcFitOO?usp=sharing
Hér má finna bókina með öllum vinningssögum: https://online.fliphtml5.com/zifpq/hhjk/#p=1