Lýðræðisfundur Viku 6

f

 

Tveir nemendur úr 8. og 9. bekk Austurbæjarskóla tóku nýverið þátt í lýðræðisfundi Viku 6 sem er árlegt kynheilbrigðis- og forvarnarátak í skólum á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn er undirbúningsfundur þar sem ungmenni koma saman og fá tækifæri til að láta rödd sína heyrast og hafa bein áhrif á þemu og framkvæmd Viku 6.
Það er mikilvægt að skoðanir nemenda fái að njóta sín við undirbúning verkefnisins og því var sérstaklega ánægjulegt að nemendur Austurbæjarskóla skyldu taka virkan þátt og leggja sitt af mörkum.