LEGO keppnin

f
f f

LEGOkeppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland, fór fram í Háskólabíói laugardaginn 14. nóvember. Alls voru 21 lið frá 17 grunnskólum víðs vegar af landinu skráð til þátttöku í keppnina, samtals nærri 200 þátttakendur. 

Þema LEGO-keppninnar í ár var BIOGLOW eða lífljómi og tengdist líffræðilegri fjölbreytni og tengslum lífvera í vistkerfum. Liðin höfðu undirbúið sig fyrir keppnina undanfarnar vikur og mánuði undir leiðsögn þjálfara sinna og á þeim tíma rannsakað áskoranir sem tengjast lífríkinu, þróað eigin nýsköpunarhugmyndir og hannað og forritað LEGO-vélmenni til þátttöku í vélmennakappleik.

Liðin voru metin út frá ýmsum þáttum, eins og nýsköpunarverkefninu sem þau unnu, hönnun og þróun vélmennis og frammistöðu í vélmennakappleik auk liðsheildar. Þegar stigagjöf í einstökum þáttum keppninnar hafði verið tekin saman kom í ljós að liðið Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar varð hlutskarpast.
 
Verðlaun í einstökum flokkum fengu eftirtalin lið:
Besta hönnun og forritun vélmennis
  1. sæti: Flóra úr Brúarásskóla í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði
  2. sæti: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
  3. sæti: Anomalocaris Gang úr Austurbæjarskóla (leiðbeinandi, Lilja Jóna Benediktsdóttir)