LEGO keppnin
LEGOkeppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland, fór fram í Háskólabíói laugardaginn 14. nóvember. Alls voru 21 lið frá 17 grunnskólum víðs vegar af landinu skráð til þátttöku í keppnina, samtals nærri 200 þátttakendur.
Þema LEGO-keppninnar í ár var BIOGLOW eða lífljómi og tengdist líffræðilegri fjölbreytni og tengslum lífvera í vistkerfum. Liðin höfðu undirbúið sig fyrir keppnina undanfarnar vikur og mánuði undir leiðsögn þjálfara sinna og á þeim tíma rannsakað áskoranir sem tengjast lífríkinu, þróað eigin nýsköpunarhugmyndir og hannað og forritað LEGO-vélmenni til þátttöku í vélmennakappleik.
- sæti: Flóra úr Brúarásskóla í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði
- sæti: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
- sæti: Anomalocaris Gang úr Austurbæjarskóla (leiðbeinandi, Lilja Jóna Benediktsdóttir)