Heimsókn í Safnahúsið
Nemendum í Íslenskuveri Austurbæjarskóla hefur verið boðið að taka þátt í samvinnuverkefni með Listasafni Íslands í Safnahúsinu v/Hverfisgötu. Safnakennarar munu kynna safnið og nemendur skoða verk og flétta inn í það íslenskukennslu í gegnum aðferðir myndlæsis. Þemað er íslenskar þjóðsögur og ævintýri. Nemendur munu svo búa til sín eigin listaverk. Í maí verður sýning og foreldrum boðið.
Fyrsta heimsóknin var núna í byrjun febrúar og tókst alveg ótrúlega vel. Í fyrstu fengu nemendur kynningu á tröllum og álfum og skoðuðu margar myndir sem tengdust þjóðsögunum um þessi fyrirbæri. Svo var boðið upp á kaffi, djús og ávexti. Í seinni hlutanum fengu þau að búa til sitt eigið fjall með vír, dúk og málningu. Í lokin voru nemendur leystir út með gjafakorti fyrir sig og tvo fullorðna á safnið. Þetta var mikil upplifun og nemendur afar ánægðir. Íslenskuver Austurbæjarskóla þakkar starfsfólki Safnahússins við Hverfisgötu einstaklega góðar móttökur.