Ferðalag um Asíu

f
f f f
Nemendur í 9. bekk fengu nýverið að spreyta sig á skapandi verkefni í samfélagsfræði. Þau völdu sér manngerð mannvirki í Asíu og útbjuggu síðan kynningu fyrir árganginn. Verkefnin voru fjölbreytt og skemmtileg og nemendur fengu frelsi til að nýta sköpunargáfuna við að miðla því sem þau höfðu lært. Útkoman var litrík ferð um Asíu án þess að yfirgefa skólastofuna! Hér má sjá nokkur dæmi af því sem nemendur bjuggu til
 
Tokyo Tower úr spýtum.
Tokyo skytree úr pasta.
Burj Khalifa úr pappa og búið að innrétta út frá því hvað er á hverri hæð.
Eftirlíking úr leir af skúlptúrnum um keisarana Yan og Huang.