Námsráðgjöf í Austurbæjarskóla

Hlutverk námsráðgjafa er að vera talsmenn nemenda í skólanum, standa vörð um velferð nemenda og leita lausna í málum þeirra. Námsráðgjafar er bundnir þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskyldum ákvæðum í lögum um barnavernd nr. 80/2002.  Öllum nemendum og foreldrum stendur til boða að leita til námsráðgjafa. 

Hvenær get ég heimsótt námsráðgjafa

Nemendur geta komið í frímínútum eða eftir skóla. Einnig geta þeir komið á skólatíma en þurfa þá leyfi kennara. Námsráðgjafi starfar bæði við einstaklings- og hópráðgjöf og fer inn í bekki með fræðslu og kynningar.

Teikning af tveimur ráðgjöfum í hægindastólum.

Hlutverk námsráðgjafa

  • Námsráðgjafi er hluti af stoðkerfi skólans en hann veitir nemendum persónulega ráðgjöf. Þá er hann málsvari nemenda og trúnaðarmaður þeirra.
  • Námsráðgjafi gerir nemendum grein fyrir möguleikum í námi, námsframboði og aðstoðar þá við val á framhaldsskóla.
  • Námsráðgjafi sér um náms- og starfsfræðslu, aðstoðar nemendur með vinnubrögð í námi og aðstoðar þá við að tileinka sér þá námstækni sem hentar þeim. Hann leggur einnig fyrir áhugasviðskönnun til þess að aðstoða nemendur við að kortleggja áhuga sinn.
  • Námsráðgjafi er hluti af nemendaverndarráði og er einnig verkefnastjóri yfir eineltisteymi skólans.

Hafa samband

Náms- og starfsráðgjafi Austurbæjarskóla 

Sími / netfang