Vorferð
Nemendur í 3. bekk fóru í vorferð í Öskjuhlíð þriðjudaginn 2. júní. Gengið var í Perluna í blíðskaparveðri. Nemendur skoðuðu sýningu um vatn og Reykjavík skoðuð af útsýnispallinum á efstu hæð Perlunnar. Nestið var borðað úti og síðan fann hópurinn sér lund í Öskjuhlíðinni þar sem nemendur léku sér. Að því loknu var gengið heim á leið.