Vettvangsferð 6. bekkinga í Perluna
Nemendur í 6. bekk fóru á námskeið í Perlunni sl. miðvikudag. Þar lærðu þeir um vatnið í náttúru Íslands og lífríkið, um jarðfræði landsins, jökla, fugla í fuglabjargi og margt fleira. Þeir enduðu svo á að fara inn í íshellinn sem er þar. Námskeiðið var mjög fróðlegt og nemendur skemmtu sér vel.