Var allt drepleiðinlegt í gamla daga?
Rithöfundarnir Brynhildur Þórarinsdóttir og Þórdís Gísladóttir heimsóttu okkur á unglingastiginu í dag. Þær sögðu lauslega frá hvaða verk þær hefðu sent frá sér en aðal púðrið fór í að velta því upp hvort allt hefði verið drepleiðinlegt í gamla daga!
Nýttu þær myndefni héðan og þaðan og sýndu fram á, á mjög skemmtilegan og frumlegan hátt að unglingar í gegnum aldir og síðustu áratugi hafa alltaf leitað að einhverju til að gera lífið skemmtilegra! Tóku þær margvísleg dæmi og rifjuðu upp mismunandi tísku í fatnaði, tónlist, útliti og ýmsu fleira. Fram kom að fullorðnir hafa líka oft á tíðum tilhneigingu til að hneykslast á unglingum og þannig hefur það verið frá ómunatíð.
Nemendur í 8. - 10. bekk voru algjörlega til fyrirmyndar í Bíósalnum, gáfu gott hljóð en sýndu skáldunum líka í lok stundarinnar að mál og myndir höfðu vakið áhuga hjá þeim.