Unglingastig í Bíó Paradís
Nemendur á unglingastigi brugðu sér af bæ og heimsóttu Bíó Paradís. Þar horfðu þau á bandarísku unglingamyndina 10 Things I Hate About You frá árinu 1999. Áður en sýningin hófst fengu nemendur stuttan fyrirlestur um kvikmyndina og kvikmyndalæsi.
10 Things I Hate About You er rómantísk gamanmynd sem byggir lauslega á leikriti Williams Shakespeare, Skassið tamið (e. The Taming of the Shrew). Þótt myndin sé komin vel yfir tvítugt hefur hún notið mikilla vinsælda meðal ungs fólks í gegnum tíðina og er fyrir löngu orðin ein af sígildum unglingamyndum síns tíma.
Ferðin var skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum skóladegi og gaf nemendum tækifæri til að fræðast um kvikmyndir og njóta þeirra saman utan veggja skólans. Það var létt og góð stemning í hópnum og notalegt að eiga öðruvísi samverustund í Bíó Paradís.