Sögur um Obbuló í Kósímó
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur heimsótti nemendur í 1. - 3. bekk í dag. Eftirvæntingin lá í loftinu enda ekki á hverjum degi sem nemendum gefst kostur á að koma saman á sal skólans til þess að hlusta á sögur.
Kristín Helga hefur verið einn ástsælasti barnabókahöfundurinn okkar og skrifað margar bækur sem þegar eru orðnar sígildar t.a.m. Fíusól. Obbuló í Kósímó var aðalpersónan í dag og fengu börnin að heyra sögur um duddurnar hennar Obbulóar og fleira bráðskemmtilegt. Sögur Kristínar Helgu eru fullar af kímni og frásögnum sem flestir kannast við úr daglega lífinu og kunnu nemendur vel að meta.