Samsöngur

f

 

Fyrsti samsöngur vetrarins fór fram að morgni föstudagsins 16. október. Nemendur og kennarar hittust á gangi skólans og sungu saman Velkomin vertu í skólann, en lag og texta á Kristín Björg Knútsdóttir umsjónarkennari við skólann og Ó, Laugavegur, texti Unnur Sara Eldjárn við lag Michael Wilshaw.

Söngurinn gekk einstaklega vel og var þetta falleg stund í söng og samveru.