Samfélagslögreglan í Austurbæjarskóla
Í dag fékk 7. bekkur í Austurbæjarskóla heimsókn frá samfélagslögreglunni. Markmiðið með heimsókninni var að kynna störf lögreglunnar, stuðla að jákvæðri ímyndarsköpun og miðla upplýsingum um öryggi og forvarnir. Farið var yfir notkun rahlaupahjóla, útivistartíma, samfélagsmiðla og hvernig og hvenær sé rétt að hafa samband við lögregluna. Börnin voru til fyrirmyndar, áhugasöm og spurðu spurninga.
Við viljum minna á að aldurstakmark á rafhlaupahjólum, rafmagnshjólum og samfélagsmiðlum er 13 ára og að mikilvægt er að nota hjálm á hjóli og bílbelti í bíl. Útivistartími barna er til kl. 20:00 fram til 1. maí 2027, nema þau séu á heimleið eftir skipulagt tómstundarstarf, eins og af æfingum, úr félagsmiðstöðum, af viðburðum á vegum skóla eða af íþróttaleikjum.