Lesið í 119.338 mínútur

f

 

Nemendur í 1. - 7. bekk lásu samtals í 119.338 mínútur!

Svakalegu lestrarkeppninni er lokið og úrslitin komin í ljós.
Nemendur í 1. - 7. bekk í Austurbæjarskóla stóðu sig með mikilli prýði og lásu í samtals 119.338 mínútur á tímabilinu 15. september - 6. október og enduðu því í 21. sæti af yfir 100 skólum. Keppnin var haldin í annað sinn og nú er bara að gera betur á næsta ári og ná að lesa ennþá meira!  
Við óskum Melaskóla innilega til hamingju með fyrsta sætið og öllum öðrum þátttakendum sem settu lestur á dagskrá hjá sér. Áfram lestur!
Það eru höfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir í Sögusmiðjunni sem standa að þessu frábæra framtaki sem keppnin er!