Lesfimi, Pals og stafaspil
Lesfimikannanir og stuðningspróf eru lögð fyrir í september, janúar og maí. Mikil áhersla er á að nýta þau til að hafa áhrif á lestrarkennsluna hjá okkur í skólanum. Við röðum nemendum saman í lestrarpör í framhaldi af niðurstöðum og leggjum áherslu á PALS lestrarkennsluaðferðina.
Í fyrsta bekk eru bókstafir og hljóð kennd út frá K-Pals sem ætlað er yngstu nemendunum. Aðferðin er kerfisbundin og gagnreynd. Það er nýtt hjá okkur í vetur að börnin fá stafaspil með sér heim í hverri viku sem skólinn hefur látið útbúa. Þegar kennari leggur inn nýja bókstafi og hljóð fá nemendur þá með sér heim og eru foreldrar beðnir um að æfa hljóð þeirra, finna orð sem byrja t.d. á hljóðinu eða enda á því. Þegar börnin hafa fengið nokkra stafi með sér er hægt að setja hljóðin saman, skrifa orð og fleira skemmtilegt.