Kærleikurinn í anda Bryndísar Klöru

f

Inga Lára og Jónína höfðu veg og vanda að uppsetningu sýningarinnar. 

f f f

,,Kærleikurinn í anda Bryndísar Klöru" er ljósmyndasýning. Hún er farandsýning sem mun fara á milli skóla og minna á mikilvægi þess að sýna kærleik og samkennd og vera í góðri samvinnu við aðra. Þannig gerum við heiminn betri. Sýningin hefur verið sett upp hjá okkur í Austurbæjarskóla á neðri gangi á milli skólasafnsins og íslenskuversins.

Kærleiksþræðir. Allir nemendur skrifuðu kærleiksrík orð á hjörtu sem mynduðu kærleiksþræði og eru þeir í gluggum hjá ljósmyndasýningunni.

Kærleikshringir í bekkjum. Kærleikshringur er einlægt hópsamtal. Hver þátttakandi fær rými til að tjá sig, á meðan aðrir hlusta af athygli, virðingu og opnum huga. Sá sem leiðir samtalið opnar umræðuna og heldur utan um rýmið og hópinn af nærgætni.