Heimsókn í Ásmundarsal
Nemendur í 1. bekk fóru í heimsókn í Ásmundarsal síðastliðinn föstudag þar sem þau nutu sýningarinnar Einn, tveir og nú og það varst þú! Um er að ræða nýtt þátttöku- og sviðsverk fyrir börn og fullorðna sem rannsakar leik og leikjamenningu þvert á kynslóðir. Nemendur tóku virkan þátt í sýningunni, eins og myndirnar bera með sér, þar sem leikur, hreyfing, ímyndunarafl og samvera voru í forgrunni.
Heimsóknin vakti mikla gleði og forvitni og var skemmtilegt tækifæri fyrir nemendur að upplifa list sem byggir á þátttöku, sköpun og sameiginlegri reynslu. Við þökkum kærlega fyrir hlýjar móttökur og eftirminnilega stund í Ásmundarsal.