Haustfrí - autumn break 22. - 26. október

f

 

Kæru foreldrar
Haustfrí grunnskóla í Reykjavík verður dagana 22.-26. október 2026. Fríið er kjörið tækifæri fyrir börn og fjölskyldur til að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Víða um borgina verður fjölbreytt dagskrá á söfnum og bókasöfnum þar sem má finna skapandi smiðjur, leik og ýmsa skemmtilega afþreyingu. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður líka kominn í hrekkjavökubúning fyrsta dag vetrar, þann 24. október, og býður upp á stórskemmtilega dagskrá fyrir öll sem þora.

Á vef Reykjavíkurborgar má finna yfirlit yfir dagskrá í haustfríinu: reykjavik.is/haustfri
Haustið er einnig góður tími til að kanna göngu- og hjólaleiðir, fara í fjöruferð, heimsækja útivistarsvæði borgarinnar, fara út að leika eða skella sér í sund. Sundlaugar Reykjavíkur eru átta og bjóða upp á góða aðstöðu fyrir fjölskyldur, hreyfingu og notalega samveru. Á borginokkar.is má finna upplýsingar um sundlaugarnar og fjölmörg tækifæri til útivistar og afþreyingar.
Njótum frísins og þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Góða skemmtun!

Good day
The autumn break for Reykjavík's public schools will take place from 22nd to 26th of October 2026. The break is a great opportunity for children and families to enjoy fun activities together.
A varied programme will be offered across the city's museums and libraries, featuring creative workshops, games, and a range of enjoyable activities. The Reykjavík Family Park and Zoo will also be dressed up for Halloween on the First Day of Winter, 24 October, and will offer an exciting programme for everyone who dares to join in.
An overview of autumn break events and activities can be found on the City of Reykjavík website: https://reykjavik.is/en/fall-break
Autumn is also an excellent time to explore walking and cycling routes, visit the shoreline, enjoy the city's outdoor recreation areas, play outside, or go swimming. Reykjavík's eight public swimming pools offer excellent facilities for families, exercise, and quality time together. Information about the swimming pools, as well as many opportunities for outdoor recreation and leisure activities, can be found at borginokkar.is.
Let's enjoy the holiday and all that the city has to offer. Have a wonderful autumn break!