Gerviréttarhöld

f

 

Nemendur í 8. bekk tóku nýlega þátt í gerviréttarhöldum (e. mock trial) í tengslum við nám sitt um fyrri heimsstyrjöldina. Verkefnið gaf nemendum tækifæri til að vinna með sögulegt efni á skapandi hátt og setja sig í hlutverk ólíkra aðila tengdum atburðum tímabilsins. Að sögn nemenda var verkefnið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt og vakti mikla ánægju.