Draugar, álfar og tröll
Nemendur í 4. bekk heimsóttu Safnahúsið við Hverfisgötu á dögunum og skoðuðu sýninguna Stattu og vertu að steini. Nemendur fengu fræðslu um drauga, álfa og tröll í myndlist. Allir voru mjög duglegir, glaðir og fróðleiksfúsir.