Dagur gegn einelti

f

 

Dagurinn gegn einelti ber upp á sunnudaginn 8. nóvember en fagnað hér í Austurbæjarskóla föstudaginn 6. nóvember. Dagurinn minnir okkur á hversu mikilvægt það er að hver og einn finni að hann tilheyri samfélaginu og sé metinn að verðleikum. Í Austurbæjarskóla viljum við fagna fjölbreytileikanum og því sem gerir hvert barn einstakt. Í tilefni dags gegn einelti munu nemendur Austurbæjarskóla skapa einstakan Nemendagarð Austó. Hver nemandi býr til sitt eigið blóm sem táknar hann sjálfan. Rétt eins og blómin í garðinum eru ólík að lit, lögun og stærð, erum við öll einstök og dýrmæt á okkar eigin hátt. 
 
Fimmtudaginn 12. nóvember fáum við svo góðan gest í heimsókn þegar Páll Óskar kemur og syngur með okkur lagið sitt um það að við séum öll einstök blóm. Boðskapur lagsins endurspeglar vel markmið dagsins: að í garðinum okkar er pláss fyrir öll blóm, alveg eins og í skólanum okkar er pláss fyrir alla. Þar skiptir máli að sýna hvert öðru virðingu, hlýju og vináttu svo allir geti blómstrað.
Saman sköpum við skóla þar sem allir eru velkomnir, allir skipta máli og allir fá tækifæri til að blómstra. 🌼🌸🌻🌷