Bókaverðlaun barnanna
Kosning um uppáhalds barnabókina fer fram ár hvert á almennings- og skólabókasöfnum um allt land. Börnin geta valið eina til þrjár barna og/eða unglingabækur sem komu út á síðasta ári á íslensku sem þeim finnast skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar af hvaða ástæðu sem er.
30. maí eru Sögur, verðlaunahátíð barnanna sýnd á RÚV og þá kemur í ljós hvaða bækur börnin völdu.