Dagur íslenskrar tungu

f
f f f f
Íslenskuverðlaun unga fólksins voru veitt í Norðurljósasal Hörpu í gær á Degi íslenskrar tungu. Markmið verðlaunanna er að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í ræðu og riti, lestri, sköpun og ljóðagerð. Nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur sem þykja hafa sýnt sérstakan áhuga, færni eða framfarir í íslensku eru tilnefndir til verðlaunanna og er þetta í 20 sinn sem verðlaunin voru veitt.
Austurbæjarskóli tilnefndi þrjá nemendur þau Unu Tryggvadóttur, Max Kjaran Malerba og Egil Ólafsson. Óskum við þeim innilega til hamingju með viðurkenninguna.