Páll Óskar í heimsókn

f
f f
Það var sannkölluð gleðistund í Austurbæjarskóla þegar söngvarinn Páll Óskar kom í heimsókn og flutti lagið sitt Eitt af blómunum, fyrir nemendur og starfsfólk.
 

Lagið ber fallegan boðskap um að við séum öll einstök, hvert og eitt eins og blóm í garði og að alltaf sé pláss fyrir öll blómin. Boðskapurinn rímar vel við Dag gegn einelti, þar sem lögð er áhersla á virðingu, umburðarlyndi og að allir fái að njóta sín eins og þeir eru.

Af því tilefni hefur orðið til sérstakur blómagarður í Austó. Nemendur og starfsfólk hafa gróðursett sín eigin blóm í garðinum og þannig skapað sameiginlegt tákn um fjölbreytileika, samkennd og vináttu. Garðurinn minnir okkur á að hver og einn skiptir máli og að saman gerum við Austurbæjarskóla að stað þar sem allir eiga heima.

Við þökkum Páli Óskari kærlega fyrir heimsóknina og innblásturinn sem hann færði okkur með söng sínum og fallega boðskapnum. 🌸🌼🌺