Þorgrímur Þráinsson les fyrir nemendur

f
f f f

Hvernig bætum við orðum í safnið?

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur kom og las úr nýrri bók sinni Litli Kristur fyrir 4. - 7. bekk. Hann lagði áherslu á það við krakkana að til að ganga vel í skóla þurfi maður að læra orð og það geri maður með lestri. Sagði hann frá strák sem hafði áberandi ríkan orðaforða.  Þegar strákurinn var spurður hvers vegna hann kynni svo mörg orð, kom í ljós að hann las margar bækur og var með sérstaka orðabók sem hann skrifaði ný orð í. Þannig lærði sá strákur. Einn nemandi spurði hvað þurfi að kunna til að skrifa bækur, svar Þorgríms var að kunna orð og læra fleiri!
Það er ómetanleg tilbreyting í skólastarfinu að sameinast í Bíósalnum við að hlusta og eiga samtal um bækur.