Heimsókn á Listasafn Íslands

f
f f

Annar bekkur fór að heimsækja Listasafn Íslands og skoðaði sýninguna Stattu og vertu að steini. Sýningin snýst um myndlist þar sem listamennirnir nýta þjóðlegan arf okkar sem innblástur og söguefni. Vel var tekið á móti börnunum og þeim sagðar sögur og vakin athygli þeirra á ýmsum verkum svo sem eftir Ásgrím Jónsson, Finn Jónsson, Huldu Hákon og fleiri góðra listamanna. Sérstaka athygli vöktu tröllaskartgripirnir eftir Egil Sæbjörnsson. Þetta er einstaklega falleg sýning sem öll börn ættu að fá að njóta. Nemendur nýttu þessa stund vel og að lokum bauðst þeim að búa til sína skuggabrúðu úr pappír og þeim voru jafnframt gefnir boðsmiðar svo mamma og pabbi gætu farið með þeim á safnið!