Skrímsli
Nemendur í 4. bekk hafa verið að vinna að skemmtilegu skrímslaverkefni. Í upphafi fengu þau að láta ímyndunaraflið ráða ferðinni og teikna skissu af sínu eigin skrímsli. Þegar hugmyndin var komin á blað völdu nemendur efni, liti, þráð, lögun augna og ýmis skrautatriði til að gefa skrímslinu sínu einstakt útlit. Smám saman tóku hugmyndirnar að lifna við og úr urðu fjölbreytt og frumleg skrímsli, hvert með sinn sérstaka svip og sjarma.
Verkefnið var bæði skemmtilegt og skapandi og gaf nemendum tækifæri til að efla hugmyndaflug sitt, sköpunargáfu og verklega færni. Það var sérstaklega gaman að sjá hversu ólík skrímslin urðu og hvernig persónuleiki hvers nemanda birtist í verkinu.