Felix Bergsson í heimsókn
Felix Bergsson leikari, rithöfundur, tónlistar- og fjölmiðlamaður heimsótti okkur í september. Hann kynnti glænýja bók um persónurnar Freyju og Frikka, Leynifélag í lífsháska og náði mjög góðri athygli barnanna sem fylgdust með af brennandi áhuga. Þegar spurningar voru leyfðar stóð ekki á þátttöku nemenda. Í lokin söng Felix tvö lög og fékk krakkana með sér í sönginn. Stundin var vel uppbyggð og nemendur voru glaðir og jafnframt spenntir fyrir að lesa nýju bókina. Heimsókn höfunda eflir og kveikir áhuga ekki síst þegar framsetningin er svona hressandi.