Lestrarstund
Nemendur í 8. bekk eru einstaklega flottur og samheldinn hópur. Í dag heimsóttu þau vini sína í 1. bekk sem tóku vel á móti gestunum. Unglingarnir völdu bækur til að lesa fyrir yngstu nemendur Austurbæjarskóla og skapaðist notaleg stemning þegar lestrarpörin dreifðu sér um rýmið, komu sér vel fyrir og nutu þess saman að lesa og hlusta á spennandi sögur. Heimsóknin vakti mikla lukku hjá bæði stórum sem smáum.