Tilkynning frá stjórn foreldrafélagsins

f

 

Kæru foreldrar og forráðamenn,

Stjórn foreldrafélags Austurbæjarskóla óskar ykkur og börnunum gleðilegs nýs skólaárs! Nú þegar skólastarfið er komið á fullt skrið langar okkur að minna á nokkur atriði og benda á það sem framundan er hjá félaginu.

Umferðin og skammdegið
Nú fer að dimma fyrr á morgnana og síðdegis, og því gott að ræða við börnin um að fara varlega í umferðinni - nota endurskin, líta vel í kringum sig og gefa sér góðan tíma á leið í og úr skóla. Hjálpið börnunum ykkar að velja öruggustu leiðina í skólann.

Öryggi barnanna
Við hvetjum ykkur líka til að rifja upp með börnunum að tala ekki við ókunnuga og að láta strax vita - hvort sem er heima, í skólanum eða hjá öðrum fullorðnum sem þau treysta - ef þau verða vör við óviðeigandi eða skrítna hegðun. Það skiptir máli að börnin viti að þau megi alltaf segja frá.

Upplýsingar frá skólanum
Minnum á að helstu tilkynningar frá skólanum og upplýsingar um skólastarfið er að finna á vef skólans:
Austurbæjarskóli | Austurbæjarskóli

Aðalfundur foreldrafélagsins
Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn mánudaginn 28. september kl. 18:00 í Austurbæjarskóla. Við bjóðum alla foreldra velkomna og hvetjum sem flesta til að mæta - þetta er góður vettvangur til að hafa áhrif á skólastarfið og kynnast öðrum foreldrum. Við sendum áminningu þegar nær dregur.

Á fundinum leitum við líka eftir áhugasömu fólki til að taka sæti í stjórn foreldrafélagsins og skólaráði, það er gefandi og skemmtilegt starf. Ef þú hefur áhuga eða vilt fá nánari upplýsingar máttu endilega hafa samband við okkur.

Við hlökkum til að sjá ykkur á aðalfundinum og til góðs samstarfs í vetur.

Minnum líka á Facebook síðu foreldra í Austurbæjarskóla: https://www.facebook.com/groups/1539349329766458/

Bestu kveðjur,
Stjórn foreldrafélags Austurbæjarskóla