About Austurbæjarskóli

Austurbæjarskóli opened in fall 1930. Previously, the school by Tjörnin, later called Miðbæjarskólinn, was the city's main school

Saga Austurbæjarskóla

Áratugurinn 1920 til 1930 fór í undirbúning og byggingu skólans sem reis í austanverðu Skólavörðuholti og var í fyrstu kallaður Nýi barnaskólinn. Sigurður Guðmundsson, húsameistari gerði teikningar og sá um bygginguna. Austurbæjarskóli er fyrsta húsið í Reykjavík sem hitað er upp með hitaveituvatni. Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari gerði lágmyndir yfir báðum aðaldyrum skólans og einnig yfir dyrum á austurgöflum. 

Illustration of a school and playground equipment representing the Department of Education and Youth

Kennslurými skólans

Í skólanum voru 30 almennar kennslustofur. Auk þeirra voru margar sérgreinastofur: teiknistofa, kennslueldhús, smíðastofa, sundlaug, fimleikasalur, handavinnustofa stúlkna, samkomusalur fyrir skemmtanir (jólaskemmtanir), kvikmyndasýningar og söngsalur. Einnig sér útbúnar náttúrufræði- og landafræðistofur vel búnar kennslugögnum. Þetta kallaði á nýja og frjálslegri kennsluhætti. Frá upphafi voru þéringar felldar niður og ákveðið var að börnin gengu frjáls inn í skólann en skipuðu sér ekki í raðir úti í porti. 

Brautryðjandi í fræðslumálum

Skólastjórinn sem var hámenntaður og áhugasamur brautryðjandi í fræðslumálum safnaði að sér vel menntuðum kennurum. Vinnubókagerð og samvinna nemenda var tekin upp. Mikill skortur var á námsbókum og öðru lesefni handa börnum. Margir af kennurum Austurbæjarskóla voru mikilvirkir rithöfundar sem skrifuðu fjölþætt efni handa börnum. Má þar nefna höfunda eins og Jóhannes úr Kötlum, Gunnar M. Magnúss, Ragnheiði Jónsdóttur, Vilborgu Dagbjartsdóttur og Stefán Jónsson.

Nokkru eftir 1950 varð nemendafjöldinn mestur, 1839. Nemendur skiptust í allt að 11 deildir í hverjum árgangi. Nú eru rúmlega 400 nemendur á aldrinum 6-15 ára í Austurbæjarskóla í 21 bekkjardeild. Starfsmenn eru 79. Skólinn hefur verið einsetinn frá haustinu 1996. Skólahúsnæðið ásamt lóð hafa á síðustu árum verið í gagngerri endurnýjun. Vilhjálmur Hjálmarsson, arkitekt hefur stjórnað verkinu og endurhannað þessa friðuðu byggingu og aðlagað hana að breyttum kröfum með fullri virðingu fyrir sögulegu gildi hússins. Í janúar árið 2000 var tekin í notkun 320 m2 viðbygging sunnan við skólann og er þá heildarflatarmál skólans 6.717 m2.