Íslenskudeildir Austurbæjarskóla og Ingunnarskóla

f
f f f f

Fimmtudaginn 26. mars var opnuð sýning í Listasafni Íslands á verkum nemenda Íslenskudeildanna í Austurbæjarskóla og Ingunnarskóla þar sem unnið var út frá sýningunni Stattu og vertu að steini! Þjóðsögur í íslenskri myndlist og var sýningin opin í nokkra daga fyrir gesti og gangandi.

Sýning nemenda er afrakstur samstarfs við fræðsludeild safnsins þar sem nemendur sem eru byrjendur í íslensku fóru í sérhannaðar heimsóknir nú í vetur. Þar var unnið með þjóðsögur og listaverk sem tengjast þeim, en hluti af verkefninu var einnig miðlun á þjóðsögum frá ólíkum heimshornum. Nemendur lásu inn þjóðsögur frá sínu landi á sínu tungumáli og unnu listaverk sem voru innblásin af íslenskum þjóðsögum. Nemendum fannst einstaklega gaman í þessari vinnu og voru stolt af sínu framlagi