Skólaleikar Vals 2026

f
f f f f f f f f

Þann 18. mars tóku nemendur úr Austurbæjarskóla þátt í árlegri íþróttakeppni fyrir nemendur í 5.-7. bekk, sem haldin var hjá íþróttafélaginu Val. Keppnin var á milli nemenda í Austurbæjarskóla, Háteigsskóla og Hlíðaskóla. Þetta er alltaf skemmtilegur viðburður fyrir nemendur á miðstigi. Spennan fyrir, á meðan og eftir keppnina er alltaf í hæstu hæðum. Þetta átti sérstaklega við í ár þar sem nemendur okkar luku keppni með því að vinna LIÐSBIKARINN, sem veittur er fyrir bestu liðsheildina. Sá bikar er auðvitað eftirsóttur og að mati sumra sá mikilvægasti. Nemendum okkar er markvisst kennt að styðja og skapa falleg og góð tengsl sem sameina alla og skapa sterka liðsheild, eins og sést af viðurkenningunni sem þeir hlutu.